Kolaportið

nóvember 21, 2010

Við verðum í Kolaportinu næstu helgi 27. og 28. nóvember.

Jólasveinakúlur

nóvember 21, 2010

Ég er búin að uppfæra síðuna með íslensku jólasveinakúlunum. :)

Uppfærðar upplýsingar á vörum frá Department 56

nóvember 21, 2010

Ég er búin að fara yfir það sem ég á og uppfæra á síðunni.  Endilega lítið á krækjurnar hér til hliðar

Nýtt ár

janúar 26, 2010

Jæja það hafðist.  Nýtt ár er gengið í garð. Til hamingju með það og takk fyrir viðskiptin á árinu 2009.  Þetta var mjög skemmtilegt.

En núna rennur upp þessi árstími þar sem fæstir eru nú að hugsa um jólaskraut og þess háttar huggulegheit.  Bara einn og einn aðili sem er jafn skrítinn og ég :)

Þá er hins vegar rétt að benda á að það er margt hér til sölu sem tengist jólunum ekki neitt.  T.d. Williraye stytturnar.  Svo á ég einnig páskaskraut og komin tími til að dunda við að setja það hérna inn. 

Endilega haldið áfram að kíkja við.

23 dagar til jóla

desember 2, 2009

Jólin jólin jólin koma brátt…. jólaskapið kemur smátt og smátt.  Við erum alltaf í jólaskapi hérna í Kópavoginum.  Þó svo að ég hafi ekki sett neitt nýtt inn á síðuna lengi, þá er ég enn að setja upp vörur í stofunni heima.  Ég er með mikið úrval af jólakúlum, styttum, fígúrum gamaldags og nýtískulegum, kórfólkið, Dickens þorpið, allar Williraye stytturnar.  Vörur frá Póllandi, Þýskalandi, Danmörku, Austurríki, Rússlandi, Bandaríkjunum og svo mætti lengi telja.  Sjón er sögu ríkari.  Endilega sendið mér línu og við mælum okkur mót.
kv
Harpa Dís
jolaskraut@gmail.com

Jólaboð

nóvember 26, 2009

Vá hvað þetta líður hratt.  Það verða komin jól áður en við vitum af.  Ef þið hafið áhuga á að kíkja á varninginn hjá mér þá bara endilega sendið þið mér línu á jolaskraut@gmail.com og við mælum okkur mót.

kv
Harpa Dís
s. 848 6176

jólin nálgast – 38 dagar til stefnu

nóvember 16, 2009

Nú þegar aðeins 38 dagar eru til jóla finnum við að jólaandinn er farin að læðast yfir landann.  Það er fátt betra en að fá góða gesti, heitt súkkulaði með rjóma, piparkökur, kertaljós og  jólatónlist.  Við viljum þakka þeim fjölmörgu sem hafa haft samband við okkur, og jafnvel kíkt í heimsókn.  Enn er nóg til þannig að það er um að gera að hafa samband og mæla sér mót við okkur.

opið hús

október 15, 2009

Sælt veri fólkið.
Nú hef ég lokið við að skreyta jólatréið og er að leggja lokahönd á að setja upp vörur heima hjá mér.  Ég fer því alveg að verða tilbúin að bjóða fólki að koma og skoða hvað er í boði.  Mig langaði að vekja athygli á því að það er mun meira til heldur en hér á síðunni, svo sjón er sögu ríkari.  Endilega skiljið eftir skilaboð hérna, eða sendið mér tölvupóst á jolaskraut@gmail.com ef þið hafið áhuga á að kíkja á hvað er í boði.

Kv
Harpa Dís

Jólakúlur

september 17, 2009

Jólakúlur í miklu úrvali.  Endilega kíkið á síðurnar hér hægra megin á skjánum. Hægt er að skilja eftir skilaboð hér á síðunni eða senda tölvupóst á jolaskraut@gmail.com  Það á enn eftir að bætast við.

j 033br2

Jólasveinar – styttur

september 17, 2009

Nú er komin sér síða þar sem safnað verður öllum jólasveina styttum sem eru í boði.  Endilega kíkið þangað.  Hægt er að skilja eftir skilaboð hér á síðunni, eða senda tölvupóst á jolaskraut@gmail.com

j 025br


Follow

Get every new post delivered to your Inbox.